Herra K

Herra K fann ég á Tinder. Flottar myndir af hávöxnum töffara, með fallegt bros á sextugsaldri. Við spjölluðum saman í nokkra daga áður en hann bauð mér í heimsókn. Við vissum bæði að þetta var einungis "booty call". Ég var á bíl og ók heim til hans en Herra K bjó í litlu þorpi hálftíma þaðan sem ég bjó. Þegar ég mæti, ók ég upp að litlu hrörlegu húsi sem vantaði sárlega viðhald. Hann tók brosandi á móti mér og hleypti mér inn í húsið. Og þvílíkt og annað eins hús, eða kannski hreysi! Það var greinilegt að hann bjó einn og pældi ekkert í hreinlæti og allt var í niðurníðslu og drasli en sjarmerandi var hann og bætti vel upp fyrir ástandið. Við settumst niður og spjölluðum. Herra K var bakveikur braskari sem skuldaði og átti í raun ekkert. Að því komst ég fljótlega en ekki vantaði drauma og skýjaborgir. En mér var eiginlega alveg sama, ég var bara mætt fyrir eitt og einungis það. Við leiddumst inn í svefnherbergið sem var einnig skrifstofa og geymsla. Þetta kynlíf var ekki að vinna næstu Edduverðlaun fyrir ástríðu og leikhæfileika. Við vorum alls ekki á sömu blaðsíðunni þarna. Hann meðal annars kramdi á mér bæði brjóstin og nartaði (og allt að því beit fast) í mig alla, alls staðar. Það heyrðist ekki setning, eitt orð, hósti né stuna frá manninum og ekki brosti hann heldur. Einungis ein stelling í boði og þegar hann loksins "kom" heyrðist ekkert, nákvæmlega ekkert. Og ég er eiginlega handviss um að Herra K "kom" aldrei. Ég gisti um nóttina og ekki hef ég hugmynd um hvers vegna. Ég botna ekkert alltof mikið í sjálfri mér öllum stundum. Snemma næsta morguns fórum við á fætur, ekkert morgunkynlíf né kaffi og ég dreif mig aftur heim. Næsta dag fór ég að taka eftir mari á brjóstum og rassi og laufléttum nartförum á kroppnum. Ég heyrði aldrei í herra K aftur enda eyddi ég honum fljótar en tekur að skrifa þetta.

En c'est la vie! Lífið heldur áfram og fleiri ævintýri bíða. Þangað til næst. 💋


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband